2012-01-24

Fórum í ómskoðun fyrir viku og það var allt eins og það á að vera. Það er 80% líkur á að þetta verði stelpa. Er mjög þakklátur fyrir þessar fréttir og vona bara að allt gangi vel fyrir stelpurnar mínar.

Erum þegar byrjuð að velta okkur fyrir hvað hún á að heita. Ekkert sérstaklega auðvelt þegar maður er frá tveimur löndum. Það eru tvö nöfn sem eru heit en ætla ekki að skrifa þau hér.

Fyllti út í rafrænt eyðublað í vinnunni í dag um hvernig heilsufar og líðan hjá manni er. Það er bara nokkuð hollt fyrir man að svara nokkrum spurningum og velta því fyrir hvernig manni líði. Niðurstaðan úr þessu að mér líður vel andlega og er ekkert stressaður.

Tími sósíalismans hérna í Svíþjóð er endanlega búin og það er sennilega engin leið fyrir sússana, eins og þeir eru kallaðir hérna, að koma sér upp úr þessari kreppu.

 

 


2011-12-28

Þá þutu jólin framhjá okkur fjölskyldunni eins og nýja hraðlest kínverja (500 km/klst er topphraðinn). Við feðgar þutum gegnum himinin á rúm 600 km/klst á leiðinni á klakan (mótvindur). Flóki vildi helst hafa gluggan lokaðan því að hann vildi ekki detta út um gluggan niður í gegnum skýin. Hann er farinn að geta ýmindað sér miklu meira en áður og líklegast meira en maður heldur.

Ég er að ímynda mér heiminn eftir 50 ár. Kína og Indland eru orðin jafn þróuð lönd og vesturlöndin. Suður-ameríkulöndin eru á leiðinni að ná sömu neyslutölu og afríkulöndin eru þar sem Kína voru fyrir 10 árum.
Lausn nr 1: náttúran sér fyrir því að miljónir deyja vegna vatns- og matarskorts ásamt náttúruhamförum + manneskjan sér fyrir því að drepa hvort annað í stríðum út af vatni, mat og orkugjöfum.
Lausn nr 2: Vistvæn þróun og hugsun hjá öllum stjórnmálamönum heims verður efst á listanum árið 2012. Neyslan minkar gífurlega og hitun jarðar verður bara 2 gráður.
Lausn nr 3: Hitun jarðar eru ekki af völdum manna og við höldum bara áfram eins og venjulega, rúmur bandaríkjamanna eru á þeirri skoðun.
Lausn nr 4: Kaldur samruni verður staðreynd og neysla fólks á auðlyndum aðlagast verðinu sem sagat tíu sinnum minni en í dag.

Núna stefnum við á 1 eða 3...

En allavegana alltaf gott að koma heim á klakan.


2011-12-12

þurfti að berjast till þess að komast upp úr rúminu. Var hálf lasinn en mælirinn sýndi ekki nóg til þess að sannfæra mig að skríða aftur undir sæng. Oft er það röng ákvörðun sem leiðir til en lengri veikindadvöl heimavið. En í dag var þetta rétt ákvörðun.
Flóki valdi sér piparkökukjól í Lúsía söngin sem krakkarnir verða með á morgun. Settum skóinn út í gluggan ef skildi að íslenskur jólasveinn kæmi í heimsókn í nótt.
Sletti úr klaufunum á föstudaginn og það var gaman en fékk að borga þýnkutollinn á laugardeginum. Fórum út í eyju þar sem voru bakaðar piparkökur. Ábending til mín: skildu hjólið eftir næst. En ef þú ert samt svo vitlaus að ferðast í þessu ástandi og ert á leiðinni út á akurinn stoppaðu þá áður en þú heldur að hjólið þitt breytist í John Deere.

2011-12-08

Strákurinn: "mamma jag älskar dig" ... "och glass".
Hann vill fá bleika pakka, tjáði hann sig líka í dag. Það skipti minna máli hvað er inni í pakanum. Mamma fær bláa pakka.
Gekk vel í MR hann var duglegur eins og alltaf á spítalanum. Fáum vonandi svar eftir nokkrar vikur.
Hvar er Gordon???

2011-12-05

Núna lítur út fyrir að veturinn hefur komið. Það er ágætt að hann kom aðeins seinna en í fyrra. Sex mánuðir með snjó var í það lengsta. Var að vonast til að það myndi frjósa á tjörnunum svo að við gætum farið á skauta en núna kyngir niður snjó og þá verður erfit fyrir ísinn að myndas. Á morgun er Flóki að fara í MR skoðun og verður svæfður. Það er alltaf smá áhætta þegar fólk er svæft og sem pabbi er maður ekkert sama þegar barnið sitt er svæft. Get rétt ímyndað mér hvernig foreldrum líður þegar börn þeirra er að berjast við erfiðan sjúkdóm...

Af hverju tvær gráður? Það versta er að þetta markmið er óraunhæft og ekkert gerist. Vona bara að einhver bindandi sáttmáli náist bráðlega þó það væri ekki nema 3°C. Svo sjáum við til hvað sólinn gerir næstu 100 árin.

Henrik Svenskmark vill meina að manneskjan er ekki að raska hitastig jarðarinnar eins mikið og flestir segja. Ég skil vel að margir taka til sín kenninguna og láta bjartsýnina ráða. Ég fór á fyrirlestur með honum í DTU á sínum tíma og hann var mjög sannfærandi. En er nú meira sammála þessu.

Sólin hefur áhrif á hitastig jarðar og ef virknin er lækandi og hitastigið er hækandi. Hvernig verður þá ástandið hér á jörðu þegar virknin fer hækandi og við höldum áfram að tæma náttúruauðlindir hér á jörðu? Þessari spurningu minni verður ekki svarað fyrr en eftir langan tíma. Barnabarnabörnin hans Flóka geta vonandi svarað minni spurningu minni og sagt að ég hefði ekkert þurft að hafa áhyggjur.

Allavegana held ég áfram vinnu minni og reyni að leggja mitt af mörkunum.


2011-12-04

Feðgadagur. Sonur minn er eins og ég, okkur lýður betur ef við hreyfum okkur daglega. Æfingar dagsins fólust í rennibrautarakstri, elgsafari, lestarklifri og róla. Það er gaman að detta in í ýmindunarheim og gleyma öllum áhyggjuefnum með stráknum. Nóvember búin og ekki var hann sá léttasti. Það má líkja honum við mánudegi, sumarið búið og allur veturinn framundan. Þreytan segir til sín. Uppsala á vonandi eftir að sýna á sér góðu hliðarnar. Tónlist > The XX

2008-04-09

Alltaf gott að koma heim á klakann - takk fyrir mig!! Gekk sem sagt ekki nógu vel í badmintoninu og það er erfitt að sættast á við að maður getur ekki æft eins mikið og maður vill til þess að standa sig. Sjáum til hvað gerist næst.

Hélt að sumarið væri að koma hérna í Svíþjóð, nix... það snjóaði í nótt svo það var allt hvítt í morgun.

Sit hérna í hádegispásu og er að undirbúa mig fyrir að komast í háa gírinn hérna í vinnunni. Nóg að krefjandi verkefnum að kljást við og það er bara gaman. Mass mass.


2008-03-20

Siggi og Birna eignuðust litla heilbrigða prinsessu í gær! Þeim mæðgunum líður vel og allt gekk vel. Til hamingju fjölskylda!! Hlakka til að kíkja á nýja eintakið bráðum.

Páskar, löng helgi, út á Land = nice! Hafið það gott um helgina.

Slóð dagsins: komið á tónleika í Stklhm


2008-03-17

Hey ég fann myndavéla snúruna mína Smile  Hérna eru nokkar myndir sem ég tók fyrir nokkru af nýja kotinu okkar.

Páskar á leiðinni og við ætlum að smella okkur að vanda út í Arholma að chilla. Tove er búin að vera smá lasin og gerðum þess vegna ekki mikið um helgina annað en að mála stóla sem við keyptum notaða og horfa á sænska eurovision keppnina. Einhver blondína sem er þekkt hér í Svíþjóð með eitthvert leiðinlegt týpískt lag sem vann. Kem bráðum á klakan til þess að sprikla á babbóvellinum að vanda. 


2008-03-12

Í gær var fyrsta kvöldið sem við vorum ekkert að stússast í nýja heimilinu okkar. Hálf tómlegt í stofunni núna þar sem flestir kassarnir eru horfnir. Keyptum notað borðstofuborð með fjórum stólum síðustu helgi og fáum notaðan setubekk frá Camillu sem við ætlum að hafa við borðið, smá retró stemning þar. Núna er bara að fylla út í restina en það er ekki auðvelt með alla þessa rúmmetra sem við höfum þarna í stofunni :o)

Er að fara á æfingu í dag með Kista BMK þar sem ég ætla að spila á næsta ári ef mér líkar vel. Þekki nokkra sem spila þar og hef heyrt að það sé góð stemning í félaginu svo að ég hlakka til að fara þangað í kvöld.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband